Listaverkið Stýrishús-Brú sett upp til eins árs
Umhverfisnefnd Seyðisfjarðar hefur samþykkt fyrir sitt leyti að listaverkið Stýrishús-Brú verði sett upp til eins árs á lóðinni Austurvegur 17B. Umrædd lóð tilheyrir Seyðisfjarðarkaupstað.Ráðherra krafinn svara um rekstur Sundabúðar á Vopnafirði
Sara Elísabet Svansdóttir sveitarstjóri Vopnafjarðar segir að á næstunni verði sent bréf til heilbrigðisráðherra þar sem krafist verður svara um rekstur hjúkrunarheimilisins Sundabúðar.
Örninn er fundinn
Tréskúlptúrinn Örninn, sem stolið var af stalli sínum við Fagradalsbraut á Egilsstöðum í byrjun síðustu viku, er kominn í leitirnar.Spá allt að 27 stiga hita á Egilsstöðum í dag
Reikna má með að hitinn á Egilsstöðum og nágrenni fari í allt að 27 stig í dag gangi veðurspár eftir. Á hitakorti Veðurstofunnar segir að hitinn á hádegi verði 24 stig, Evrópska veðurstofan reiknar með allt að 27 stiga hita og Trausti Jónsson veðurfræðingur segir á bloggsíðu sinni á mbl.is að allt að 30 stiga hiti sé í kortunum.
Veðurblíðan eykur fjölda flugfarþega til Egilsstaða
Það sem af er þessum mánuði hefur orðið aukning á fjölda flugfarþega um Egilsstaðaflugvöll. Hin mikla veðurblíða undanfarna daga er að öllum líkindum ástæðan.Gleðjumst saman yfir árangrinum en gætum okkar samt
Aðgerðastjórn almannavarna á Austurlandi hvetur íbúa fjórðungsins til að gleðjast saman yfir góðum árangri í baráttunni við Covid-19 veiruna en minnir um leið á að áfram verði að huga vel að smitvörnum.Ágangur við Stuðlagil tefur framkvæmdir
Mikill ágangur ferðamanna við Stuðlagil á Jökuldal hefur tafið framkvæmdir í sumar, meðal annars lagningu göngustígar sem á að auðvelda fólki aðgang að gilinu.Geta hannað sitt eigið útsýnisflug hjá Flugfélagi Austurlands
Kári Kárason framkvæmdastjóri Flugfélags Austurlands segir að það sé töluverður gangur í útsýnisfluginu hjá þeim þessa dagana. Raunar sé mun meira að gera hjá þeim en á sama tíma í fyrra. Fyrir utan staðlaðar ferðir geta menn hannað sitt eigið útsýnisflug eins og þá listir.