Talsverðar breytingar á lista Austurlistans
Talsverðar hreyfingar eru milli sæta á frambjóðendum Austurlistans fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar í nýju sveitarfélagi. Engar breytingar eru þó á efstu fimm sætunum.Ekkert gengur að fá fólk til starfa hjá Síldarvinnslunni
Ómar Bogason skrifstofustjóri Síldarvinnslunnar segir að ekkert gangi að fá fólk til starfa í fiskvinnslu hjá þeim. Fyrirtækið muni auglýsa eftir fólki í vikunni.Formaður Sögufélags Austurlands segir nafnið Múlaþing villandi
Sigurjón Bjarnason formaður Sögufélags Austurlands segir að sínu viti væri í besta falli villandi og í versta falli ókurteisi gagnvart þeim sem búa utan hins nýja sveitarfélags, en innan hins eiginlega Múlaþings, að nefna hið nýstofnaða sveitarfélag þessu nafni. Þetta kemur fram í erindi sem Sigurjón sendi sveitarstjórnum Fljótsdalshéraðs, Seyðisfjaðarkaupstað, Dúpavogshreppi og Borgarfjarðarhreppi.Tveir smitaðir af COVID um borð í Norrænu
Í tilkynnningu frá lögreglunni á Austurlandi segir að um borð í Norrænu sem er á leið til landsins eru tveir farþegar sem greindust jákvæðir við Covid-19 í skimun í Danmörku og hafa þeir verið í einangrun um borð. Ekki leikur grunur á að aðrir farþegar hafi smitast.
Stigar og pallar við Stuðlagil brátt tilbúnir
Búið er að koma upp stálstigum og útsýnispöllum niður að Stuðlagili við bæinn Grund á Efri Jökuldal. Lítilsháttar frágangsvinna er eftir en bíður hún þess að verktakinn komi úr sumarfríi. Reiknað er með að endanlega ljúki framkvæmdum í næsta mánuði.Hálslón á yfirfall
Vatn byrjaði að renna um yfirfall Hálslóns á laugardag og niður farveg Jökulsár á Dal á laugardag. Áin er þar með heldur fyrr á yfirfalli en undanfarin ár.Sérkennileg norðurljós í Hallormsstaðaskógi
Þeir sem búa í Hallormsstaðaskógi og nágrenni gátu séð norðurljósinn aðfararnótt sunnudagsins. Voru þau óvenjuskær miðað við árstíma og nokkuð sérkennileg í laginu.Eitt brot á sóttkví til rannsóknar
Lögreglan á Austurlandi hefur til rannsóknar eitt mál þar sem grunur er um að einstaklingur hafi brotið gegn lögum um sóttkví. Ekkert nýtt smit hefur greinst í fjórðungnum í rúma viku.Vilja stofna eitt stærsta steinasafn landsins á Breiðdalsvík
Náttúruminjasafn Íslands vill stofna eitt stærsta steinasafn landsins á Breiðdalsvík. Safnið myndi byggja á steinasöfnun Björns Björgvinssonar sem búsettur er á staðnum. Tveir jarðfræðingar hafa unnið s.l. tvo mánuði við að flokka steina og mynda þá. Um er að ræða safn upp á um tuttugu þúsund steina.Umtalsvert meiri veiði í Hofsá en í fyrrasumar
Laxveiðin í Hofsá hefur gengið umtalsvert betur í sumar en í fyrrasumar. Í morgun voru 804 laxar komnir úr ánni miðað við rétt um 700 á sama tíma í fyrra. Stærsti laxinn í sumar hingað til var 20 pund að stærð.Metur hverju sinni hvort staðsetning COVID smita verði gerð opinber
Aðgerðarstjórn almannavarna Austurlands segir að hún muni meta hverju sinni hvort upplýsingar um staðsetningu COVID smita verði gerðar opinberar.