Fljótsdalshérað er enn eitt besta skógræktarsvæði landsins
Hópur starfsfólks Skógræktarinnar, nú Lands og skóga, ferðast um landið á hverju ári til að leggja út mælifleti í Landsskógarúttekt. Með henni á að kortleggja bæði ræktaða og villta skóga. Slíkar upplýsingar nýtast meðal annars við að áætla kolefnisbindingu landsins. Verkefnið fagnar í ár 20 ára afmæli sínu.Myndun meirihluta í Fjarðabyggð á lokametrunum
Línur eru orðnar nokkur skýrar í viðræðum Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks um myndun nýs meirihluta í bæjarstjórn Fjarðabyggðar. Ekki er þó enn komið að undirskriftinni.Snör handtök komu í veg fyrir að meira yrði úr glóð í sög í Egilsstaðaskóla
Slökkvilið Múlaþings var kallað út í hádeginu þar sem glóð og reykur kom upp í sög í smíðastofu Egilsstaðaskóla. Snör handtök starfsfólks urðu til þess að glóðin náði sér aldrei á strik.Grunnskólanemendur á Borgarfirði krefjast betra leiksvæðis
Það ekki ýkja algengt að grunnskólanemendur taki sig til og sendi áskorun til ráðandi afla í fámennum bæjum eða þorpum. Það gerðu þó eldri nemendur í grunnskólanum á Borgarfirði eystri nýverið sem vilja stórbætt leiksvæði við skólann sinn.
Málefnasamningur tilbúinn í Fjarðabyggð
Viðræðum Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks um myndun nýs meirihluta í Fjarðabyggð er lokið. Málefnasamningur verður lagður fyrir flokksfélög í kvöld og, ef þau gefa samþykki sitt, undirritaður á morgun.Nýr búsetukjarni mun stórbæta þjónustu við fatlaða í Fjarðabyggð
Skrifað hefur verið undir samstarfssamning Fjarðabyggðar annars vegar og fyrirtækisins R101 ehf. um byggingu sérstaks búsetukjarna fyrir fatlaða einstaklinga.
Aðstæður í Grindavík kalla á endurskipulagningu á bolfiskvinnslu Síldarvinnslunnar
Vinna er hafin hjá Síldarvinnslunni við að endurskipuleggja bolfiskvinnslu félagsins. Aðalvinnsla þess í Grindavík hefur verið óstarfhæf síðan bærinn var rýmdur vegna eldgosahættu 10. nóvember síðastliðinn. Forstjóri félagsins segir áhuga á að vinna með öðrum vinnslum sem geti tekið við meira hráefni.Á eftir að ræða betur við RARIK um fjarvarmaveituna á Seyðisfirði
Sveitarstjóri Múlaþings segir að enn sé í gangi undirbúningsvinna áður en sveitarfélagið geti tekið við fjarvarmaveitukerfi RARIK á Seyðisfirði. Hann segir að meðgjöf þurfi að fylgja veitunni. RARIK hefur tilkynnt að það ætli að hætta rekstrinum í ár.Rannsókn flugslyssins í Sauðahlíðum gengur hægt
Opinber rannsókn á tildrögum flugslyssins í Sauðahlíðum síðastliðinn júlí þar sem þrír létu lífið gengur hægt fyrir sig hjá Rannsóknarnefnd flugslysa (RNFS). Ólíklegt er að hugsanleg orsök eða orsakir verði ljósar fyrr en með lokaskýrslu síðla á næsta ári.
Gengið verður inn um glænýtt anddyri í Fjarðarborg í sumar
Endurbætur á hálfrar aldar gömlu félagsheimili Borgfirðinga, Fjarðarborg, ganga vel að sögn umsjónarmanns framkvæmdanna. Lokið verður við nýtt anddyri hússins að mestu auk stórs hluta efri hæðar hússins áður en sumarið gengur í garð.
Skoða hitaveitu á Vopnafirði með varma frá vinnslu Brims
Gangi hugmyndir sjávarútvegsfyrirtækisins Brims á Vopnafirði eftir að fullu gæti verið vel hægt að nýta orku vinnslustöðva fyrirtækisins til keyrslu fjarvarmaveitu. Slík veita gæti hugsanlega nýst til að hita upp hluta þorpsins sjálfs.