Orkumálinn 2024

Vinnsla á loðnuhrognum gengur vel

„Hún fer vel af stað og allur búnaður hefur reynst vera í besta lagi og virkar vel en hann hefur ekki verið notaður í þrjú ár.“ segir Jón Gunnar Sigurjónsson yfirverkstjóri hjá Síldarvinnslunni í Neskaupstað um upphafi vinnslu á loðnuhrognum.


Þetta kemur fram á vefsíðu Síldarvinnslunnar en vinnsla á loðnuhrognum hófst í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað í gærkvöldi þegar byrjað var að landa úr Beiti NK sem kominn var með liðlega 2000 tonn. Þegar var byrjað að kútta loðnuna og hreinsa og dreina hrognin en pökkun átti að hefjast nú um hádegisbil.

„Við fórum frekar rólega af stað en erum að kútta um það bil 70 tonn á tímann. Það eru allir ánægðir með að hrognavinnslan skuli vera hafin og þá ekki síst fulltrúar japönsku kaupendanna sem hér eru og fylgjast nákvæmlega með öllu,“ segir Jón Gunnar í samtali á vefsíðunni.

„Það verður unnið í hrognunum á tveimur vöktum og það eru 25 manns á hvorri vakt þegar iðnaðarmenn eru meðtaldir. Við gerum ráð fyrir að ljúka við loðnuna í Beiti í fyrramálið en þá mun Börkur væntanlega koma og síðan Bjarni Ólafsson.

Veiðin er fyrir vestan land og það er 30 tíma sigling til Neskaupstaðar af miðunum en hann spáir blíðuveðri þannig að þetta lítur allt afar vel út.“

Mynd: Jón Gunnar Sigurjónsson yfirverkstjóri fylgist grannt með hrognavinnslunni. Ljosm: Hákon Ernuson.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.