Orkumálinn 2024

Vill íbúðir í Bónusblokkinni á uppboð

bonusblokk_web.jpg
Íbúðalánasjóður hefur farið fram á að sjö íbúðir í Blómvangi 2, betur þekktri sem Bónusblokkinni á Egilsstöðum, verði settar á uppboð vegna vangoldinna gjalda. Hönnun blokkarinnar er að auki meingölluð.

Greint er frá beiðninni um uppboðið í Lögbirtingablaðinu. Kröfur sjóðsins á hverja íbúð eru um hálf milljón króna.

Íbúðirnar sjö eru allar skráðar á Blómvang ehf. Í ársreikningi félagsins fyrir árið 2011 kemur fram að eigið fé félagsins hafi í lok þess árs verið neikvætt um tæpar 76 milljónir króna.

Athygli vekur í ársreikningnum að engar fasteignir eru skráðar á félagið. Einu eignirnar eru efnisbirgðir sem metnar eru á rúmar 115 milljónir króna og 150 þúsund krónur í reiðufé. 

Lögheimili félagsins er í Reykjavík. Tap varð á rekstri félagsins upp á 1,5 milljón króna og langtímaskuldir þess nema tæpum 180 milljónum.

Blokkin var byggð árið 2005 og í henni eru 23 íbúðir. Hún var nýverið í fréttum vegna hönnunar- og smíðagalla sem dómkvaddir matsmenn telja að kosti yfir 80 milljónir króna að laga. 

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.