Víða grátt í fjöll á Austfjörðum

Austfirðingum var mörgum brugðið þegar þeir litu til fjalla í morgun. Víða var grátt niður fjallahlíðarnar, sem fágætt er á síðasta degi júnímánaðar.

Ofan byggðarinnar í Neskaupstað hafði snjórinn fikrað sig niður í átt að byggðinni og víða mátti sjá hvíta litinn þegar horft var um í fjallahringnum.

Þetta var hvorki einsdæmi á Austfjörðum né heldur á landinu. Á Fagradal var lá snjólínan í um 350 metra hæð.

Í Neskaupstað var mesta úrkoma á landinu í nótt, tæpir 7 mm auk þess sem hitastig í þorpinu fór niður undir frostmark.

Snjóinn hefur að mestu tekið út eftir því sem liðið hefur á daginn, en þó ekki að fullu. Áfram eru líkur á næturfrosti næstu daga og jafnvel einhverri slyddu, þá sérstaklega til fjalla.

Sveiflurnar hafa verið miklar í veðrinu síðustu daga því á fimmtudag var hitinn víða yfir 20 stigum austanlands. Hitamismunurinn er því um 20 stig á aðeins þremur dögum.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.