Vefsíða Vopnafjarðar aftur tilnefnd til verðlauna
Nýtt merki Vopnafjarðarhrepps er tilnefnt í flokki firmamerkja í ár hjá FÍT auk þess sem ný vefsíða sveitarfélagsins hlaut tilnefningu fyrir hönnun vefsvæðisins. Þetta er í annað sinn sem vefsíðan er tilnefnd til verðlauna.FÍT eða Félags íslenskra teiknara er fagfélag grafískra hönnuða í landinu og er eitt 9 aðildarfélaga Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs.
Í umfjöllun um málið á vefsíðu Vopnafjarðarhrepps segir að hönnun bæði byggðamerkisins og vefsvæðisins var í höndum hönnuða hjá Kolofon hönnunarsofu. Sveitarfélagið naut leiðsagnar Greips Gíslasonar við verkefnið.
Nýtt byggðamerki hreppsins var kynnt síðastliðið haust þegar nýr vefur leit dagsins ljós. Markmið sveitarstjórnar með nýjum vef og ásýnd að auka upplýsingagjöf til íbúa og gesta þeirra.
Fyrr á árinu hlaut ný vefsíða sveitarfélagsins tilnefningu til Íslensku vefverðlaunanna sem besti opinberi vefurinn.
FÍT-verðlaunin verða afhent 14. maí í tengslum við HönnunarMars. “Vopnfirðingar allir geta verið stoltir af þessum árangri,” segir á vefsíðunni.