Orkumálinn 2024

Íbúar sem ekki komast heim fá greidda leigu út mars

Múlaþing hefur ákveðið að greiða leigu út mars fyrir þá íbúa Seyðisfjarðar sem enn hafa ekki getað flutt á sín heimili. Íbúar Seyðisfjarðarkaupstaðar eiga von á rýmingarskiltum sem Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra vinnur að og gefa út. Skiltin verða send í öll hús innan Seyðisfjarðar í mars.

 

Framangreint kemur fram á vefsíðu Múlaþings. Á Seyðisfirði hefur að auki verið lokið við að koma fimm síritandi vatnshæðarmælum fyrir í borholum og bætast þeir við þá fimm sem fyrir voru. Verið er að undirbúa fjölgun GPS stöðva og stendur til að bæta 6 við þær 3 sem þegar hafa verið settar upp.

Þetta kom fram á stöðufundi fyrir helgina með lögreglu, almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, fulltrúum Múlaþings, Veðurstofu og fleirum. Farið var yfir stöðu hreinsunarstarfs, vöktunarmæla, rýmingaráætlana og fleira.

Fjallað er um fundinn á vefsíðunni. Þar kom fram að fengist hefur tilboð í síritandi aflögunarmæla fyrir tvær borholur og tvo togmæla yfir sprungur. Aflögunarmælarnir geta sýnt hreyfingu á skriðflötum í jarðlögum en togmælarnir sýna gliðnun sprungna á yfirborði.

Undanfarið hefur mest verið unnið við hreinsun á skriðusvæðinu í kringum Slippinn. Lítið hefur verið hægt að vinna í varnargörðunum vegna bleytu. Miðvikudaginn 24. febrúar voru settir niður 5 síritandi grunnvatnsmælar í viðbót í Neðri-Botnum. Þar með er heildarfjöldi grunnvatnsmæla í Neðri-Botnum orðinn 10 stykki. Nú er verið að vinna að undirbúningi á breytingu á farvegi Búðarár við Hafnargötu, þar er mikið af lögnum sem þarf að huga að sem og hæðarlega Hafnarvegar. Einnig er í undirbúningi að hefja vinnu við bráðavarnir ofan við ytri hluta Botnahlíðar í samráði við íbúa.
 

Unnið er að líkanreikningum sem liggja til grundvallar bráðabirgðahættumati fyrir svæðið við Múla. Áhrifasvæði skriðna úr óhlaupnum flekum hafa verið kortlögð og nú beinast sjónir að skriðum sem geta fallið úr þelaurðinni undir Strandartindi. Vonast er til að ljúka þeim líkanreikningum að mestu í þessari viku. Í framhaldinu verður hættan á öðrum svæðum neðan Botnabrúnar metin út frá líkanreikningum og fyrirliggjandi upplýsingum.
 
Farið verður í vinnu við endurskoðun aðalskipulags fyrir svæðið í heild er endurskoðað hættumat liggur fyrir, sem verður væntanlega í byrjun sumars, en unnið er að því af sérfræðingum Eflu og Veðurstofunnar.
 
Verið er að leggja lokahönd á rýmingaráætlanir og kort til kynningar fyrir íbúa og viðbragðsaðila. Vonir standa til að þeirri vinnu ljúki fljótlega, að því er segir á vefsíðunni.

Mynd: Seyðisfjörður í dag./mulathing.is

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.