Vatnið komið í lag á Stöðvarfirði
Íbúar á Stöðvarfirði þurfa ekki lengur að sjóða neysluvatn sitt. Mengun sem kom í ljós í síðustu viku virðist horfin.Þetta kemur fram í tilkynningu frá Fjarðabyggð.
Sýni voru tekin úr vatninu á fimmtudag. Niðurstöður úr þeim bárust í morgun og reyndust þau í lagi. Ekkert segir um hvort tekist hafi að rekja uppruna mengunarinnar.