Varað við hríð og stormi austanlands

Gul veðurviðvörun tekur gildi á morgun á Austurlandi að glettingi og Austfjörðum. Spáð er norðvestan hríð og stormi á Austfjörðum


Þetta kemur fram á vefsíðu Veðurstofunnar. Þar segir að viðvörunin gildi frá klukkan 9 á morgun og fram til miðnættis á Austurlandi að Glettingi. Þar er spáð Norðvestan 15-23 m/s og éljagangi eða skafrenningi með lélegu skyggni og erfiðum akstursskilyrðum.

Á Austfjörðum tekur aðvörunin gildi kl. 11 og stendur til miðnættis. Þar er spáð Norðvestan 18-25 m/s og mjög snörpum vindhviðum við fjöll, hvassast sunnantil. Einnig má búast við éljagangi og skafrenningi með lélegu skyggni og erfiðum akstursskilyrðum.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.