Úrslit í kjöri til heimastjórna

Kosið var til heimastjórna samhliða sveitarstjórnarkosningum í nýju sameinuðu sveitarfélagi á Austurlandi í dag. Heimastjórnirnar eru fjórar talsins, fyrir hvert núverandi sveitarfélaga.

Tveir fulltrúar voru kosnar í hverja sveitarstjórn á Borgarfirði, Djúpavogi, Fljótsdalshéraði og Seyðisfirði. Hver kjósandi gat þó aðeins valið einn einstakling.

Tæknilega séð voru allir á kjörskrá í framboði en þó gáfu 18 manns formlega kost á sér. Í kvöld voru aðeins lesin upp nöfn þeirra sem náðu kjöri.

Þau eru:

Borgarfjörður
Alda Marín Kristinsdóttir, 30 atkvæði
Ólafur Arnar Hallgrímsson, 27 atkvæði

Djúpivogur
Kristján Ingimarsson, 47 atkvæði
Ingi Ragnarsson, 41 atkvæði

Fljótsdalshérað
Dagmar Ýr Stefánsdóttir, 463 atkvæði
Jóhann Gísli Jóhannsson, 163 atkævði

Seyðisfjörður
Ólafur Hr. Sigurðsson, 171 atkvæði
Rúnar Gunnarsson, 76 atkvæði

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.