Umferð jókst mest á Austurlandi í maí
Umferðin á Hringveginum jókst mest á Austurlandi eða um rúmlega 23% í maí miðað við sama mánuð í fyrra. Á landsvísu jókst umferðin um 8,4% á milli sömu mánaða.Þetta kemur fram á vefsíðu Vegagerðarinnar en þar segir að á síðasta ári hafði orðið tæplega 40% samdráttur á Austurlandi í maí miðað við sama mánuð árið á undan.
Minnst jókst umferð á og í grennd við höfuðborgarsvæðið í maí í ár eða um 5%. Af einstökum mælingum jókst umferð mest á Mýrdalssandi eða um rétt rúmlega 50%.
Þá segir að það sem af er ári hefur umferð aukist um rúmlega 12% en á sama tíma á síðasta ári hafði safnast upp 15,5% samdráttur. Útlit sé fyrir að í ár geti umferðin aukist um 8% en yrði eigi að síður um 6% minni en árið 2019, sem reyndar var metár.