Tvö COVID smit á LungA hátíðinni
Það komu upp tvö smit á LungA hátíðinni á Seyðisfirði undanfarna daga. Eitt smit var rakið til Café Láru síðastliðin miðvikudag en búið er að hafa samband við alla í því smitmengi og rakningu lokið.Þetta kemur fram í tilkynningu frá forráðamönnum hátíðarinnar. Þar segir einnig að annað smit kom upp í dag en smitmengi þess einstaklings nær því einungis til sunnudags.
"Það þýðir að þeir einstaklingar sem voru í nànu samneyti við viðkomandi hafa verið settir í sóttkví í dag. Aðrir þurfa ekki að örvænta að svo stöddu," segir í tilkynningunni.
"Ekki er um hópsmit að ræða en við munum að sjálfsögðu miðla þeim upplýsingum áfram sem við kunnum að fá í framhaldinu. LungA hvetur alla gesti hátíðinnar að fylgjast með einkennum og fara í skimun ef einhver einkenni koma í ljós og annars huga vel að einstaklings sóttvörnum.