Töluvert af verkfærum eyðilögðust í brunanum
Töluvert var til staðar af verkfærum og skógræktartækjum í skemmunni sem brann á bænum Freyshólum í dag. Eldsupptök eru ókunn.Skemman var byggð úr timbri og því mikill eldmatur í henni. Ingólfur Sigurðsson sem hefur jörðina til afnota segir að allt sem var í skemmunni sé ónýtt og því um talsvert tjón að ræða.
Ingólfur var á vettvangi í dag að skoða kringumstæður. Hann segir að ekki hafi verið búið í einbýlishúsinu á jörðinni í fleiri ár. Sjálfur noti hann jörðina til hestamennsku og útivistar.
Þegar Austurfrétt kom á vettvang rúmlega klukkan fimm var síðasti slökkvibíllinn að yfirgefa staðinn. Enn er þó lögregluvakt á staðnum.
Eins og fram kom í fyrri frétt var slökkviliðið á Egilsstöðum kallað út um hálf fjögur leytið. Þegar það kom á staðinn var skemman nær brunnin til grunna og eldur laus í sinu við hlið hennar. Mjög fljótt tókst að ráða niðurlögum eldsins.