Þrjú skip halda til loðnuleitar í dag

Í dag fara þrjú skip frá útgerðum loðnuskipa til loðnuleitar og því munu samtals fjögur skip sinna mælingunum næstu daga.  Auk þess eru tvö loðnuskip til viðbótar tilbúin að koma að verkefninu ef þörf verður á.


Þetta kom fram á ríkisstjórnarfundi í morgun. Þar gerði Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, grein fyrir því að hann hefði í samræmi við ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar undirritað reglugerð um veiðar á loðnu. Kvótinn var nýlega hækkaður í 61 þúsund tonn.

Þá gerði ráðherra einnig grein fyrir því að rannsóknaskip Hafrannsóknastofnunar, Árni Friðriksson, fór af stað til mælinga síðastliðinn sunnudag.
 
Veðurspá næstu daga auk spár um dreifingu hafíss úti fyrir Vestfjörðum gefur vonir um að það takist að fara yfir rannsóknasvæðið og að mæla stofninn að nýju á næstu dögum. Verður áhersla lögð á svæðið úti fyrir norðanverðum Austfjörðum, fyrir Norðurlandi og Vestfjörðum en ekki hefur tekist að kanna þau svæði síðustu vikur sökum óveðurs og hafíss hefur hamlað leit úti fyrir Vestfjörðum.

„Það er mjög ánægjulegt að tekist hafi að afstýra að loðnubrestur myndi verða þriðja árið í röð. Þetta er vissulega ekki mikið magn en sú staðreynd að íslensk skip munu nú halda til veiða á loðnu er skref í rétta átt. Leitin heldur áfram af fullum þunga og í dag bætast þrjú skip við í þá leit. Það er enda mikið í húfi fyrir viðspyrnu efnahagslífsins að loðnuvertíðin verði eins öflug og kostur er,“ segir  Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra í tilkynningu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.