Þriðjungur farþega Norrænu fóru á sóttkvíarhótel

Norræna kom í gærmorgun til Seyðisfjarðar með 98 farþega. Allir fóru í sýnatöku utan þrjú börn undir bólusetningaaldri. Þrjátíu og einn fóru á sóttvarnarhótelið á Hallormsstað. Niðurstöðu sýnatöku er að vænta í dag.


Þetta kemur fram á vefsíðu Fjarðabyggðar þar sem vitnað er í tilkynningu frá aðgerðarstjórn almannavarna á Austurlandi. Þar segir að enginn er með greint COVID smit á Austurlandi og bólusetning í fjórðungnum gengur vel.

“Gert er ráð fyrir að við lok næstu viku hafi náðst að bólusetja fólk fætt 1961 og eldra. Innan tveggja vikna svo verði allir með undirliggjandi sjúkdóma bólusettir að minnsta kosti einu sinni. Hafi fólk spurningar varðandi stöðu sína í bólusetningum þá er hægt að fara inn á spjall á heilsuvera.is, “ segir á vefsíðunni.

“Aðgerðastjórn vekur athygli á að góð staða nú er ekki trygging fyrir því að sú verði áfram raunin. Blikur eru víða á lofti, bæði innan lands og utan. Við þurfum því að gæta að okkur sem fyrr. Gott er þá að hafa orð skáldsins í huga sem áréttaði mikilvægi þess að vera á verði aftan og framan og allt um kring, þó af öðru tilefni væri.

Með hækkandi sól ættum við að endingu að komast á beinu brautina en munum að enn er spölur eftir. Um samstarfsverkefni er að ræða og með því að gæta að eigin hag hugum við að öðrum. Gerum þetta saman."

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.