Úthlutað úr Fjárafli

Á fundi atvinnumálanefndar Fljótsdalshéraðs, 13. apríl síðastliðinn, voru teknar til afgreiðslu umsóknir í Atvinnumálasjóð Fljótsdalshéraðs, Fjárafl.  Umsóknarfrestur rann út um miðjan mars, alls bárust sjóðnum níu umsóknir.

 

baejarskrifstofur__egilsstdum2.jpgFram kemur á heimasíðu Fljótsdalshéraðs að Atvinnumálasjóðnum Fjárafli bárust nú níu umsóknir, en ein þeirra barst of seint og var því ekki talin gild.

Aðrar umsóknir voru taldar fullnægja skilyrðum samþykkta sjóðsins og úthlutunarreglum hans auk þess að vera mjög raunhæfar. Alls var nú úthlutað samtals 3.500.000 krónum.

Eftirfarandi verkefni hlutu styrk úr sjóðnum að þessu sinni:
- Grái hundurinn ehf, vegna hönnunar á útivistar og afþreyingargarði kr. 600.000
- Holt og Heiðar ehf, vegna kaupa á viðarkynntri sírópsgerðarvél fyrir birkisafa kr. 600.000                           
- Félag áhugafólks um heimafóðurverkefnið, vegna fóðurgerðar kr. 400.000 
- Þorsteinn Snædal, vegna kjötvinnslu á Skjöldólfsstöðum kr. 400.000
-Lára Vilbergsdóttir, vegna óstofnaðs hlutafélags um sölu listmuna, minjagripa og handverks kr. 750.000
-Þorpið c/o Þekkingarnetið, til að fjármagna ráðgjafa að hluta o.fl. kr. 750.000.          

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.