Tengivagn hrökk aftan úr flutningabíl
Ysti hluti leiðarinnar um Tjarnarás á Egilsstöðum lokaðist á fjórða tímanum í dag eftir að tengivagn hrökk aftan úr flutningabíl Flytjanda á leið út götuna.Engin slys munu hafa orðið á fólki en einhverjar skemmdir á vagninum. Kranabíll var fenginn á vettvang til hífa vagninn upp úr götunni og er vonast til að það taki skamman tíma.