Stórri og fallegri loðnu landað á Vopnafirði

Stór og falleg loðna hefur komið á land á Vopnafirði að undanförnu. Rúmlega 40 stykki eru í kílóinu og loðnan er átulaus.

Þetta kemur fram á vefsíðu Brims. Þar segir að uppsjávarskipið Svanur RE hafi komið til hafnar á Vopnafirði fyrir helgina með rétt tæp 1.900 tonn af loðnu. Aflinn fékkst í fimm holum NA af Langanesi.

„Þetta er stór og falleg loðna, rúmlega 40 stykki í kílóinu, og algjörlega átulaus,“ segir á vefsíðunni.

Rætt er við Hjalta Einarssonar, skipstjóra á Svani, sem segir að aðalveiðisvæðið verið NA af Langanesi síðustu daga en einnnig hefur veiði verið sunnar.

,,Þessi loðna virðist vera á austur eða suð-austurleið en við vitum að það er loðna hér norðvestar og eins austar en þar hefur verið þrálát bræla marga síðustu daga. Engar fréttir hafa þó borist um loðnu sunnarlega út af Austfjörðum.”

Hjalti segir að fyrst til að byrja með hafi loðnan veiðst meðan birtu naut en nú virðist besta veiðin vera yfir blánóttina.

,,Loðnan heldur sig á 70 til 80 metra dýpi í myrkrinu. Við höfum skemmst togað í fjóra tíma og förum helst ekki yfir 12 tímana. Stærðin á loðnni hefur verið mjög góð. Við höfum mest verið að veiða stóra loðnu, um 40 stykki í kílóinu, en svo getur þetta sveiflast örlítið milli túra. Hið sama á við um átuna. Nú er loðnan, sem við erum með í tönkum, alveg átulaus en í sumum túrum er örlítil áta í loðnni,” segir Hjalti en hann kveður mörg skip vera á miðunum. Auk íslenskra skipa séu þar norsk skip og fjögur grænlensk skip. Færeyingarnir séu enn ekki byrjaðir.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.