Orkumálinn 2024

Stiller kemur ekki á morgun heldur hinn: Við erum ekki að biðja íbúa um að loka sig inni

ben_stiller_seydis_18072012.jpg
Kvikmyndatökulið Hollívúdd-myndarinnar The Secret Life of Walter Mitty, með stórstjörnuna Ben Stiller í fararbroddi, ætlar að taka upp á Seyðisfirði á fimmtudag og föstudag. Fram kemur komið að umferð um bæinn verði takmörkuð en í bréfi til íbúa segjast skipuleggjendurnir alls ekki vera að biðja bæjarbúa um að loka sig inni.

„Í þessum upptökum þurfum við að láta líta svo út sem bærinn sé mannlaus. Við leitum því til allra bæjarbúa og biðjum góðfúslega um ykkar aðstoð svo þetta gangi vel eftir og biðjum ykkur um að mæta tilmælum kvikmyndagerðarmanna eftir bestu getu þessa tvo daga,“ segir í bréfinu frá True North sem birt er á vef Seyðisfjarðarkaupstaðar í dag.

„Við viljum árétta að við erum engan vegin að biðja alla bæjarbúa að loka sig inni þessa tvo daga, heldur eingöngu að aðstoða okkur við að hafa auðar þær götur sem við erum að vinna við hverju sinni og á meðan kvikmyndavélarnar rúlla. Fulltrúar okkar munu vera auðþekkjanlegir og geta svarað spurningum sem koma upp.“

Í bréfi sem True North sendi bæjaryfirvöldum fyrir skemmstu voru tilgreindir tveir tökustaðir, annars vegar við Hótel Ölduna í miðjum Seyðisfjarðarkaupstað, hins vegar við útsýnispallinn við stuðlabergssúlurnar í Fjarðarheiði.

Gert er ráð fyrir að tökurnar taki allan daginn og stýra þarf umferð á meðan eða jafnvel loka í 3-10 mínútur í senn á meðan upptökur fara fram. Bíleigendur í nágrenni Öldunnar mega gera ráð fyrir að þurfa að verða beðnir um að fjarlægja ökutæki sín. 

Vinnuflokkurinn telur alls um 200 manns og meðal annars þarf að hugsa fyrir stóru rými þar sem hann geti borðað. Honum fylgja um 100 ökutæki, þar af um 25 vöruflutningabílar, sem koma þarf fyrir í bænum.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.