Stefna á kynningarfund um Öxi fyrir áramót
Fundur til að kynna væntanlega veglagningu fyrir mögulegum framkvæmdaaðilum yfir Öxi hefur ekki enn verið haldinn. Þó er stefnt að því að hann verði á þessu ári.Í samtali við Austurfrétt í byrjun júlí sagði Sigurður Ingi Jóhannsson, samgönguráðherra að svokallaður markaðsdagur í september, útboð um komandi áramót, samningar undirritaðir um mitt næsta ár og framkvæmdir hæfust í kjölfarið.
Þessi markaðsdagur hefur ekki verið haldinn enn. Hjá Vegagerðinni fengust í dag þær upplýsingar að á hann sé stefnt fyrir áramót. Á honum verður allt fyrirkomulag við framkvæmdina kynnt mögulegum bjóðendum. Í svari við fyrirspurn Austurfréttar segir ennfremur að staðan sé óbreytt að öðru leyti.
Alþingi samþykkti í fyrra að gera nýjan veg yfir Öxi í samvinnu ríkis og einkaaðila, væntanlega fjármagnaðan með veggjöldum. Vegagerðin sér um forhönnun en framkvæmdaaðili um lokahönnun og verkhönnun. Við þá vinnu í vor voru gerðar breytingar á veglínunni til að minnka snjósöfnun en það tafði heldur verkið.