Spá allt að 40 m/s í hviðum á Austfjörðum
Gul veðurviðvörun tekur gildi á Austfjörðum klukkan þrjú í dag og sendur til klukkan níu í fyrramálið. Spáð er vindhraða upp að 40 m/s í snörpum vindhviðum.Þetta kemur fram á vefsíðu Veðurstofunnar. Þar segir að spáð er norðvestan hvassviðri eða stormi, 18-25 m/s. Mjög snarpar vindhviður, allt að 40 m/s. Fólk er hvatt til að sýna aðgát á ferðalögum og tryggja lausamuni.
Á vefsíðu Vegagerðarinnar segir að á Austurlandi sé víða snjóþekja og skafrenningur á vegum.
Þá er vegurinn um Öxi lokaður vegna snjóa.