Snjóþekja á Fjarðarheiði
Snjóþekja er á Fjarðarheiði, þæfingsfærð á Mjóafjarðarheiði og krapi á Hellisheiði eystri.
Þetta kemur fram á vefsíðu Vegagerðarinnar. Þar segir einnig að hálkublettir séu á Breiðdalsheiði, Öxi og víðar á fjallvegum.
Mynd: Úr vefmyndavél Vegagerðarinnar á Fjarðaheiði