Orkumálinn 2024

Smávægileg hreyfing á hryggnum við Búðará

Nokkurra millimetra hreyfing hefur greinst á jarðvegshrygg utan við Búðará á Seyðisfirði undanfarinn sólarhring. Öruggt er þó talið að sprengja vegna snjóflóðavarnagarða þar í dag. Vatnsyfirborð Lagarfljóts hefur lækkað mikið.

Úrkoman í gær og nótt á Austfjörðum mældist 2-4 mm., sem er óverulegt. Spáð er svipuðu veðri á morgun en á fimmtudag er von á hlýindum og úrkomu sem gæti þýtt allt að 50 mm. rigningu á Seyðisfirði.

Samkvæmt yfirliti ofanflóðadeildar Veðurstofunnar mældist hreyfing hryggjarins 3-5 mm., Þó hefur hægst á henni. Hreyfing er einnig á Þófa en minni.

Vatnshæð í borholum hefur heldur lækkað en hún er enn há. Því þykir ekki ástæða til rýminga en ráðið er frá vinnu eða umferð í lækjar- og skriðufarvegum, sérstaklega við Búðarána þar sem jarðlög eins og hryggurinn hafa verið óstöðug síðan í skriðuföllunum í desember 2020.

Vinna við gerð snjóflóðavarna í norðanverðum firðinum halda áfram og í dag milli klukkan 14 og 15 verður klöpp losuð í Skaganámu með sprengingu. Viðvörunarflautur hljóma áður. Þetta er gert að höfðu samráði við Veðurstofuna sem telur ekki hættu á ferðum.

Vatnsyfirborð Lagarfljóts við Fellabæ hefur lækkað um 40 sm. frá því það var hæst á sunnudagskvöld. Það breytir því ekki að vatnsstaða í fljótinu er enn mjög há. Samkvæmt gögnum Veðurstofunnar hefur rennsli Jökulsár í Fljótsdal við Valþjófsstað, Geithellnaár í Álftafirði og Fossár í Berufirði einnig lækkað verulega og er komið niður undir það sem það var þegar mestu rigningarnar hófust fyrir 10 dögum þótt þær séu enn allar vatnsmiklar.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.