Síldarvinnslan kaupir Berg-Huginn: Skipunum líklega fækkað um eitt

svn_logo.jpg
Síldarvinnslan hf í Neskaupstað (SVN) hefur undirritað kaupsamning um kaup á öllu hlutafé í útgerðarfélagi Bergur-Huginn ehf (BH) í Vestmannaeyjum. Seljandi er hlutafélag í eigu Magnúsar Kristinssonar útgerðarmanns og fjölskyldu. Kaupverð er trúnaðarmál milli kaupanda og seljenda að því er kemur fram í fréttatilkynningu Síldarvinnslunnar. Með kaupunum styrkist staða Síldarvinnslunnar í bolfiski. Útlit er fyrir að skipunum verði fækkað um eitt.

Bergur-Huginn gerir út tvo nýlega togara, Bergey VE-544 og Vestmannaey VE-444. Bæði skipin eru 29 metra löng og voru smíðuð fyrir útgerðina í Póllandi á árunum 2006 og 2007. Hjá félaginu starfa 35 manns. Bergur-Huginn rekur ekki landvinnslu og hefur stærsti hluti aflans farið á markað erlendis.

Með þessum kaupum eykur Síldarvinnslan aflaheimildir sínar í bolfiski umtalsvert. „Með þessum kaupum erum við að styrkja stöðu okkar í bolfiski sem við teljum vera rökrétt skref fyrir Síldarvinnsluna. Við skjótum þar með styrkari stoðum undir rekstur félagsins,” er haft eftir Gunnþóri Ingvasyni, framkvæmdastjóra SVN, í tilkynningunni.

„Við þessi kaup tökum við yfir umtalsverðar skuldir en með hagræðingu teljum við að þær verði viðráðanlegar. Við munum nota þetta tækifæri til að endurskipuleggja reksturinn með það að markmiði að tryggja að útgerðin geti áfram skilað hagnaði.“

Skipunum fækkað um eitt

Eftir þessi kaup hefur SVN yfir fjórum skipum að ráða til bolfiskveiða en ljóst er að þeim verður fækkað um eitt í hagræðingarskyni. Þá mun reksturinn allur verða endurskipulagður en stefnt er að því að gera bæði út frá Vestmanneyjum og Neskaupstað.

Aflaheimildir sem Bergur-Huginn hefur yfir að ráða nema um 5.000 þorskígildistonnum á yfirstandandi fiskveiðiári. Heimildirnar eru eingöngu bolfiskur.  Samanlagðar aflaheimildir beggja félaganna nema um 10.000 þorskígildistonnum í bolfiski. 

Treysta á að stjórnvöld verji heilbrigt umhverfi í sjávarútvegi

„Bergur-Huginn verður rekið sem sjálfstætt félag. Við munum nota næstu mánuði til að skipuleggja þær breytingar sem ráðast þarf í og reyna að ljúka því verki ekki síðar en um áramótin. Öll óvissa í þessum efnum er óþægileg, ekki síst fyrir starfsfólkið og því mikilvægt að henni ljúki svo fljótt sem kostur er,“ segir Gunnþór.

Síldarvinnslan er sterkt félag sem ætlar sér að vera áfram í íslenskum sjávarútvegi. Með þessum kaupum tökumst við  á hendur miklar skuldbindingar. Það gerum við í trausti þess að stjórnvöld á hverjum tíma muni bera gæfu til að standa vörð um heilbrigt starfsumhverfi  í sjávarútvegi.“ 

Fórnarlamb grófrar markaðsmisnotkunar

Í yfirlýsingu sem Magnús Kristinsson, fyrrverandi eigandi Bergs-Hugins, sendi frá sér fyrr í dag segist hann hafa neyðst til að selja félagið til að greiða niður skuldir sem urðu til við kaup á hlutabréfum í Landsbankanum.

„Ég var þar eitt margra fómarlamba grófrar markaðsmisnotkunar eins og síðar hefur komið á daginn. Ég hef streitst við að halda félaginu og standa skil á skuldunum við bankana en hlýt nú að horfast i augu við að það mun ekki takast. Ég á því engan annan kost en að selja hluti mína i félaginu enda blasir við að áform um aukna gialdheimtu af útveginum mun skerða rekstrarhæfi útgerðarfélaga og þá ekki síst þeirra minni. Samhliða sölunni nú hefur farið fram fullt skuldauppgjör við Landsbankann.“

Höfuðstöðvar Síldarvinnslunnar eru í Neskaupstað, þar sem rekin er fiskimjölsverksmiðja og fiskiðjuver. Fyrirtækið rekur einnig fiskimjölsverksmiðjur á Seyðisfirði og í Helguvík. Þá tekur SVN þátt í rekstri fóðurverksmiðju á Akureyri og tengist útgerð á Akranesi.

Kaupsamningurinn er undirritaður með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.