Skoða framtíðarfyrirkomulag samstarfs um brunavarnir

Endurskoðun stendur yfir á fyrirkomulagi slökkviliða í Múlaþing, Fljótsdal og Vopnafjarðarhreppi. Til stendur að leggja niður byggðasamstarfið Brunavarnir á Austurland eftir tilurð Múlaþings.

Samstarfið í brunavörnum er meðal þess sem varð til þess að Borgarfjarðarhreppur, Djúpavogshreppur, Fljótsdalshérað og Seyðisfjarðarkaupstaður fóru að ræða saman um sameininguna sem tók formlega gildi fyrir mánuði.

Sveitarfélögin hafa átt í samstarf við Fljótsdalshrepps og Vopnafjarðarhrepps um brunavarnir, en íbúar þeirra sveitarfélaga kusu að standa utan sameinignarviðræðnanna.

Á aðalfundi Brunavarna á Austurlandi í september var mörkuð sú stefna að leggja samlagið niður í núverandi mynd. Formaður þess, Björn Ingimarsson bæjarstjóri Múlaþings, segir að í staðinn verði til slökkvilið Múlaþings og verði samstarfssamningur gerður við Vopnfirðinga og Fljótsdælinga á svipuðum forsendum og verið hefur innan byggðasamlagsins.

Sveitarstjórn Fljótsdalshrepps lýsti yfir áhyggjum sínum vegna breytinganna á síðasta fundi. Á Vopnafirði var Söru Elísabetu Svansdóttur, sveitarstjóra, falið að greina hvaða kostir væru í stöðunni við rekstur slökkviliðs á Vopnafirði.

Í svari við fyrirspurn Austurfréttar segir hún að viðræður séu í gangi við Múlaþing um samstarfssamning á svipuðum nótum og verið hafi. Allt sé enn í skoðun en samkomulagið um brunavarnirnar sé enn í gildi.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.