Sjálfstæðisflokkurinn mælist með þrjá þingmenn
Sjálfstæðisflokkurinn kemur best út úr nýrri könnun Rannsóknarmiðstöðvar Háskólans á Akureyri (RHA) og bætir við sig þingmanni í Norðausturkjördæmi. Þrír flokkar virðast í hættu á að tapa þingmönnum.Könnun RHA var gerð dagana 26. ágúst til 6. september þar sem sendur var tölvupóstur á úrtak í kjördæminu. Alls bárust 1354 svör. Rúmur helmingur tók afstöðu til stjórnmálaflokkanna en 37,8% sögðust óákveðin og 5% vildu annað hvort ekki svara eða sögðust ekki kjósa.
Sjálfstæðisflokkurinn mælist með 23% fylgi samanborið við 20,27% fyrir fjórum árum. Þetta gerir það að verkum að flokkurinn bætir við sig kjördæmakjörnum þingmanni, fer úr tveimur í þrjá.
Í könnuninni eru þingsæti aðeins reiknuð fyrir þá níu kjördæmakjörnu þingmenn sem eru í Norðausturkjördæmi en tíunda þingsæti svæðisins er jöfnunarsæti.
Framsóknarflokkurinn heldur sínum tveimur en bætir við sig talsverðu fylgi, mælist með 18,2% en var með 14,34% síðast.
Vinstri hreyfingin – grænt framboð mælist með 14,2% en fékk 19,91% fyrir fjórum árum. Flokkurinn missir annan af tveimur þingmönnum sínum.
Samfylkingin mælist með tæp 11% en fékk 13,87% síðast þegar var kosið. Samkvæmt útreikningum RHA fær flokkurinn einn þingmann í kjördæminu en hefur tvo. Annar þeirra náði jöfnunarsætinu.
Miðflokkurinn fær 9,7% í könnuninni sem þýðir að hann missir helming fylgis síns sem var 18,59% og annan þingmanninn.
Píratar næðu þingmanni inn á ný, mælast með 7,9% en fengu 5,48% síðast. Það þýðir að þeir fá á ný þingmann á svæðinu sem þeir höfðu kjörtímabilið 2016-17.
Sósíalistar fá 7,1%, Viðreisn 4,6%, Flokkur fólksins 3,9% og Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn 0,4%. Viðreisn fékk 2,1% fyrir fjórum árum og Flokkur fólksins 4,26%. Enginn þessara flokka kæmi að kjördæmakjörnum þingmanni. Litlu má þó muna að annar þingmaður VG eða fyrsti maður Sósíalista felli þriðja mann Sjálfstæðisflokks.
Niðurstöður könnunarinnar eru nokkuð á skjön við aðrar kannanir úr kjördæminu sem birst hafa vikur. Á það ber þó að benda að úrtakið í RHA er töluvert stærra en í þeim könnunum sem teknar eru á landsvísu en síðan brotnar niður í kjördæmi. Í þeim eru oft frekar fáir einstaklingar á bakvið niðurstöður úr kjördæminu.