Síldarvinnslan fékk fimmta hæsta styrkinn út Matvælasjóði
Síldarvinnslan í Neskaupstað fékk fimmta hæsta styrkinn þegar úthlutað var úr Matvælasjóði nýverið. Sjö prósent styrkfjárins kom í verkefni sem að mestu verða unnin á Austurlandi.Síldarvinnslan fékk rúmar 19 milljónir í verkefnið „Rauða gullið“ sem miðar að þróun á veiðum og vinnslu rauðátu. Sjóðnum er skipt í fjóra flokka og var verkefnið í flokknum afurð, sem miðar að þróun afurða.
Jurt ehf., sem ræktar wasabi í Fellabæ, fékk 10,6 milljónir í stafræna markaðssetningu í flokknum fjársjóður, sem styrkir markaðssetningu.
Tveir styrkir komu austur úr flokknum Kelda, sem miðar að því að styðja við rannsóknir. Annars vegar fékk Matís 8,6 milljónir þróun nýrra lausna á merkingum matvæla en hins vegar fékk Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum 12,2 milljónir í að rannsaka bakteríufangara gegn fiskabakteríum. Bæði verkefnin eru unnin í samstarfi við einkaaðila á svæðinu en ekki er tekið fram í yfirliti hverjir þeir eru.
Enn fremur var veitt styrkjum um verkefni sem unnin verða víða um land, til dæmis athugunar á endurnýjun fiskiskipaflotans á kolefnisspor undir handleiðslu Matís, rannsóknar Landbúnaðarháskólans á leiðum til aukinnar matvælaframleiðslu og stuðningi Samtaka smáframleiðenda við matarfrumkvöðla.
Matvælasjóði er ætlað að stuðla að nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og samkeppnishæfni íslenskrar matvælaframleiðslu. Úthlutað var úr honum í fyrsta sinn í lok árs 2020. Að þessu sinni var úthlutað tæpum 567 milljónum til 64 verkefna en 273 umsóknir bárust. Næst verður úthlutað vorið 2022.