Sigtúnið loks malbikað

Gatan Sigtún á Vopnafirði var malbikuð í gær. Gatan komst í landsfréttirnar vorið 2014 þegar framboð til sveitarstjórnar, Beta Sigtún, kenndi sig við götuna og setti það efst á forgangslista sinn að malbika hana.

Forsvarsmenn framboðsins bjuggu við götuna og kvörtuðu undan því að hún væri sú eina í bænum sem ekki væri klædd. Að lokum varð það niðurstaðan að taka slaginn svo úr varð framboð ungs fólks á svæðinu.

Það komst í oddaaðstöðu við myndun meirihluta um vorið og sat í meirihluta þar til í vor, en Betra Sigtún bauð ekki fram aftur.

Að fylgja eftir malbikuninni varð ekki fljótlegt verk en meðal annars strandaði á skipulagsmálum. Úr þeim var leyst á síðasta kjörtímabili og í vor var tilboði Malbikunar Norðurlands í að klæða götuna tekið.

Síðustu vikur hafa verið nýttar til undirbúnings af hálfu Vopnafjarðarhrepps og verktaka af svæðinu en malbikunarflokkurinn mætti svo loks í gær.

Sara Elísabet Svansdóttir, sveitarstjóri, segir verkið hafa gengið fljótt og vel. Nú séu allar götur með bundnu slitlagi og ánægja að það sé í höfn, þótt alltaf sé einhvers staðar lagfæringa höfn.

„Hver veit nema flaggað verði framvegis 28. júní hér í sveitarfélaginu til að fagna þessum merka áfanga?!“ segir Sara Elísabet.

Mynd: Aðsend


Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.