Sextíu milljónum veitt úr Uppbyggingarsjóði Austurlands

Rúmum sextíu milljónum var í gær veitt til 61 verkefnis úr Uppbyggingarsjóði Austurlands. Þetta er í fimmta sinn sem úthlutað er úr sjóðnum sem hefur það hlutverk að menningar- og nýsköpunar- og atvinnuþróunarverkefni í samræmi við sóknaráætlun landshlutans.

Alls bárust 116 umsóknir, sem eru álíka margar og síðustu ár. Sjóðsstjórn valdi hins vegar þá leið að styrkja færri verkefni í ár en í fyrra en þau sem urðu fyrir valinu fengu hærri upphæðir.

Alls var útlutað 60,316 milljónum til 61 verkefnið. Af þeim voru 30 á sviði menningarmála og fengu þau 27,9 milljónir en 25 á sviði atvinnuþróunar sem fengu 24 milljónir. Að auki voru veittar 8,2 milljónir til stofn- og rekstarstyrkja á sviði menningar.

Að þessu sinni var sérstaklega kallað eftir verkefnum sem tengdust mataruppbyggingu og matarmenningu. Styrki hlutu 13 verkefni sem vinna að nýsköpun í matvælaframleiðslu. Má þar nefna hæsta styrk til einstaklings sem ætlaður er til þróunar á vörum úr sauðamjólk, matarleikhús Óbyggðaseturs og matarupplifunarferðamennsku Adventura.

Áætlaður heildarkostnaður verkefna var 560 m.kr. en sótt var um styrki fyrir 180 m.kr, þar af 94 m.kr. til menningarmála og 85 m.kr. til nýsköpunar og atvinnuþróunar.

Styrkir Uppbyggingarsjóðs Austurlands 2019

Umsækjandi Verkefni Upphæð
Skaftfell,sjálfseignarstofnun Sýningadagskrá Skaftfells 2019 2,500,000
Skaftfell,sjálfseignarstofnun Listfræðsluverkefni Skaftfells 2019 700,000
Sinfóníuhljómsveit Austurlands Vorgáski 2,000,000
Sinfóníuhljómsveit Austurlands Sinfóníuhljómsveit Austurlands 1,000,000
LungA-Listahátíð ungs fólks Listasmiðjur, LungA Lab & listviðburðir 3,000,000
Sköpunarmiðstöðin svf. Sköpunarmiðstöðin á Stöðvarfirði 2,150,000
Sköpunarmiðstöðin svf. Tape Recording Camp at Studio Silo 600,000
Djúpavogshreppur Miðstöð Cittaslow á Íslandi 1,500,000
Djúpavogshreppur Rúllandi snjóbolti 12, Djúpavogi 2019 1,000,000
Ann-Marie Gisela Schlutz Sauðagull 2,150,000
PES ehf. Markaðsetning Krossdal Gunstock 2019 2,100,000
Auður Vala Gunnarsdóttir Sjósunds-aðstaða Borgarfirði eystra 1,900,000
Millifótakonfekt ehf. Eistnaflug 2019 1,800,000
Listahátíðin List í Ljósi List í Ljósi 1,200,000
Listahátíðin List í Ljósi HEIMA x LIST Í LJÓSI 500,000
Sporaslóð ehf. Matarleikhús 1,000,000
Sporaslóð ehf. Lifandi miðlun á sagnabrunni Óbyggðanna 700,000
Kristín Amalía Atladóttir Anno 1724 1,500,000
William Óðinn Lefever Lefever Sauce co. 1,500,000
Tónlistarmiðstöð Austurlands Upptakturinn á Austurlandi 800,000
Tónlistarmiðstöð Austurlands Maximús Músikús á BRAS 600,000
Adventura ehf. Snætt í Hlauphólavíkinni 1,300,000
Fljótsdalshérað Sumarsýning 2019 (vinnuheiti) 1,200,000
Hið austfirska bruggfélag ehf. Beljandi í dósir 1,200,000
Ströndin Atelier ehf. Ströndin Studio School of Photography 1,200,000
Breiðdalsbiti ehf. Náttúrulegir kjötkraftar 500,000
Breiðdalsbiti ehf. Endurbætur á reykkofa 400,000
Breiðdalsbiti ehf. Ærberjasnakk -markaðssetning 300,000
Vesturfarinn, áhugamannafélag Siglt, gengið, riðið og rúllað í lest 600,000
Vesturfarinn, áhugamannafélag Rannsóknir Vesturfarans á Vopnafirði 500,000
Berta Dröfn Ómarsdóttir Raven's kiss eða Koss hrafnsins 1,000,000
Bókakaffi Hlöðum ehf Matur eins og amma gerði 1,000,000
Fljótsdalshérað Þjóðleikur 2019 1,000,000
Kammerkór Egilsstaðakirkju Vínarklassík Kammerkórs Egilsstaðakirkju 1,000,000
Kolbeinn Arnbjörnsson SKARFUR 1,000,000
LungA-skólinn ses. The Net Factory (3rd phase) 1,000,000
Samtökin Eiðavinir Saga Eiðaskóla 1,000,000
Skæri Steinn Blað sf. RÓ fyrir börnin 1,000,000
Svavar Pétur Eysteinsson Sumar í Havarí 2019 1,000,000
Tækniminjasafn Austurlands Angró Bryggjuhús vaknar til lífsins. 1,000,000
Minjasafn Austurlands Sumarhús Kjarvals - annar áfangi 500,000
Minjasafn Austurlands Handverk og hefðir: Málþing og námskeið 500,000
Antonía Malmquist Baldursdóttir Knock on Wood 900,000
Ferðamálasamtök Vopnafjarðar Fugla- og laxaskoðun í Vopnafirði 800,000
Stelpur rokka!,félagasamtök Stelpur Rokka! Austurland 800,000
Gunnarsstofnun Afþreying og matarmenning á Upphéraði 300,000
Gunnarsstofnun Rithöfundalest um Austurland 300,000
Gunnarsstofnun Þar liggur hundurinn grafinn - málþing 200,000
Guðrún Schmidt Loftslagsmál og sjálfbær þróun–námskeið 786,000
Jökuldalur slf. Stuðlagil nýr áfangastaður á Austurlandi 730,000
Bláa Kirkjan sumartónleikar Sumartónleikaröðin Bláa kirkjan 2019 700,000
Egilsstaðabúið ehf Uppbygging mjólkurvinnslu 700,000
Egilsstaðakirkja Tónlistarstundir 2019 700,000
Fjarðabyggð Fjölbreyttara sumarstarf í Fjarðabyggð 700,000
Listdans á Austurlandi, félagasamtök Dansstúdíó Emelíu 700,000
Litten Nyström Colors of growth 700,000
Þórunn Bylgja Borgþórsdóttir KnitBox 700,000
Félag ljóðaunnenda á Austurlandi Útgáfa ljóðabóka 2019 600,000
Mamúni ehf. BE Porcelain 600,000
Pála Svanhildur Geirsdóttir Grafinn þorskur 500,000
Sölumiðstöð Húss Handanna ehf. Aldrei gleymist Austurland 500,000

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.