Orkumálinn 2024

Sex umsækjendur um fjórar prestsstöður

Sex umsækjendur eru alls um fjórar stöður presta í nýju Austfjarðaprestakalli. Einn einstaklingur sækir um allar stöðurnar fjórar.

Listi yfir umsækjendur var birtur í dag en umsóknarfrestur rann út í byrjun vikunnar.

Skipan í embættin í haust mun marka miklar breytingar á austfirsku kirkjustarfi. Fimm austfirsk prestaköll, Djúpavogs-, Heydala-, Kolfreyjustaðar-, Eskifjarðar- og Norðfjarðarprestaköll, sameinast þá í nýtt Austfjarðaprestakall.

Þegar hefur verið gengið frá skipan Jónu Kristínar Þorvaldsdóttur á Fáskrúðsfirði í starf sóknarprests í prestakallinu.

Skipað verður í embættin fjögur til fimm ára. Umsóknir hljóta næst umfjöllun matsnefndar um hæfni til prestsembættis. Að fenginni niðurstöðu hennar fjallar kjörnefnd prestakallsins um umsóknirnar. Kjörnefnd kýs að því búnu milli umsækjendanna og skipar biskup Íslands þá sem hljóta löglega kosningu.

Eftirtalin sóttu um embættin:

Prestur 1. Skipun frá 1. september 2019

Mag. theol. Benjamín Hrafn Böðvarsson
Sr. Erla Björk Jónsdóttir
Mag. theol. Dagur Fannar Magnússon
Mag. theol. Ingimar Helgason

Prestur 2. Skipun frá 1. október 2019

Mag. theol. Benjamín Hrafn Böðvarsson
Mag. theol. Dagur Fannar Magnússon
Sr. Erla Björk Jónsdóttir
Mag. theol. Ingimar Helgason
Mag. theol. Jarþrúður Árnadóttir

Prestur 3 með aðsetur í Heydölum. Skipun frá 1. nóvember 2019

Mag. theol. Dagur Fannar Magnússon
Mag. theol. Jarþrúður Árnadóttir

Prestur 4 með aðsetur á Djúpavogi. Skipun frá 1. nóvember 2019

Cand. theol. Alfreð Örn Finnsson
Mag. theol. Dagur Fannar Magnússon
Mag. theol. Jarþrúður Árnadóttir

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.