Orkumálinn 2024

Selur nýupptekið kál á Egilsstöðum

Margrét Árnadóttir garðyrkjubóndi á Hallfreðarstöðum býður fólki á Egilsstöðum og nágrenni upp á nýupptekið kál til sölu. Hún ræktar það á lóð Barra á Valgerðarstöðum. Tegundirnar sem enn eru í boði eru hvítkál, hnúðkál og grænkál.

„Ég er núna á leiðinni til Egilsstaða með kálið í skottinu,“ segir Margrét þegar við náðum tali af henni fyrr í dag. „Ég keyri ekki til Egilsstaða nema eiga þangað erindi eins og í dag er ég að fara í sjúkraþjálfun. Fólk er hinsvegar velkomið að koma til mín að versla.“

Margrét segir að í vor hafi hún sáð einum 20 tegundum af grænmeti en frostið í vor fór illa með hluta af uppskerunni. Á heildina litið hafi blómkálið verið vinsælasta grænmetið hjá henni í haust. „Ég verð bara að vona að næsta vor verði betra en í ár,“ segir hún.

Margrét selur grænmeti sitt í gegnum Facebook síðuna Grænmeti og gotterí. Þar gerir hún grein fyrir sér og segir m.a.: „Ég lét draum minn rætast haustið 2016 og hóf nám við Garðyrkjuskólann á Reykjum komin hátt á sextugs aldurinn. Draumurinn var eiginlega alveg eins og ég hélt bæði skemmtilegur og einnig fróðlegur og nærandi.“

Einnig kemur fram að hún keypti 5 gróðurhús eða bogahús á lóð Barra á Valgerðarstöðum. „Meiningin var þá að flytja þau heim í sveit en við marg endurhannað ræktunarsvæði ákvað ég að láta reyna á hvort ég gæti verið áfram á Valgerðarstöðum og nýtt mér heitt vatn og nálægð við markað. Sú vinna er enn í gangi og vonandi gengur það upp að lokum,“ segir á Facebook.

„Ég lauk námi mínu í lífrænni ræktun og langar mig mest að halda mig við hana en er ekki komin svo langt ennþá. Í haust ætla ég að bæta við kunnáttu mína í ræktun og bæta við mig aðeins meira námi í ylrækt blóma og fleira.“

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.