„Segja má að barinn sé óopinbert sendiráð Íslendinga á Tenerife“

„Eigendur og starfsfólk hjólaleigunnar Bikes of the Bikes, í samráði við vini og kunningja hér á Tenerife, ákváðu að setja söfnunina af stað þegar fréttist að tryggingar bættu tjónið ekki,“ segir Hafþór Harðarson, fyrrverandi fararstjóri á Tenerife og einn þeirra sem vinnur nú að því að létta undir með eigendum „austfirska“ barsins Nostalgíu eftir að brotist var inn á hann í síðustu viku.


Eins og Austurfrétt greindi frá í síðustu viku var brotist inn á barinn Nostalgiu á Tenerife, sem í daglegu tali gengur undir nafninu „íslenski barinn“. Eigendur hans eru Breiðdælingurinn Herdís Hrönn Árnadóttir og maður hennar Sævar Lúðvíksson, en þau hafa undanfarin tvö ár rekið staðinn sem nýtur mikilla vinsælda meðal Íslendina og annarra gesta á eyjunni. Þrátt fyrir að vera með tryggingu fæst tjónið ekki bætt þar sem engir rimlar eru fyrir gluggum. 


Auk Hafþórs og fleiri Íslendinga er það íslenska hjólaleigan Bikes og the Bikes sem stendur að söfnuninni.

„Íslenski barinn skiptir mjög miklu máli fyrir alla Íslendinga sem koma til Tenerife, burtséð frá því hvort fólk mætir einhverntíman þangað eða ekki. Herdís og Sævar vinna mun meira starf en fólk almennt gerir sér grein fyrir, en segja má að barinn sé óopinbert sendiráð Íslendinga á Tenerife.

Þar hafa farið fram kosningar og með aðstoð og góðu neti Nostalgíu hafa töpuð vegabréf komið í leitirnar, svo fátt eitt sé nefnt. Þar kemur fólk einnig saman og horfir á íslenskar fréttir og íþróttaviðburði og borðar góðan mat með íslensku ívafi. Þarna myndast vinskapur í afslöppuðu andrúmslofti, en þá skiptir einu hvort fólk komi að austan, vestan, norðan eða sunnan. Barnafólk getur sest niður og hvílt lúin bein og á meðan að börnin hamast í leik á  öruggu og aflokuðu torgi,“ segir Hafþór.

Markmiðið er að safna fyrir tveimur nýjum sjónvörpum
Hafþór segir að söfnunin fari rólega af stað en mjakist þó í rétta átt. „Þeir sem af henni frétta hafa verið jákvæðir. Markmiðið er að ná að kaupa í það minnsta eitt vandað og stórt sjónvarp, helst tvö. Vonandi náum við því markmiði í desember en erum alveg tilbúin til að halda söfnuninni lengur áfram ef þarf. Það að missa fjögur stór sjónvörp er gríðarlega stór biti fyrir hvaða bar sem er hér á Tenerife,“ segir Hafþór, en auk þeirra var sjónvarpsboxi, búðarkassanum og rafmagnshjóli með þremur dekkjum stolið. Þá var tækjum var hent til og frá og þau eyðilögð.

Aðspurður um fyrirkomulag söfnunarinnar segir Hafþór að hver og einn kjósi sína upphæð, en öll fjárhæðin rennur óskipt til Nostalgíu.  Þeir sem hafa áhuga á að hjálpa til er bent á að hafa samband við Facebook-síðu Bikes of the Bikes.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.