Saman fyrir Seyðisfjörð verkefnið er hafið
Samstarfsverkefnið Saman fyrir Seyðisfjörð er hafið. Þar kemur saman mikill fjöldi tónlistarmanna sem býður upp á söng og tónlist alla vikuna.
Verkefnið miðar að því að aðstoða við enduruppbyggingu Seyðisfjarðar eftir að aurskriður og hamfaraflóð féllu á bæinn, með mikilli eyðileggingu, í lok síðasta árs. Saman fyrir Seyðisfjörð mun streyma á samanfyrirseydisfjord.info fram að 31. janúar með nýjum listamönnum daglega klukkan 12 á hádegi, að því er segir á vefsíðu Múlaþings.
Tónlistarinnar má njóta alla vikuna á heimasíðu hátíðarinnar en þar eru einnig upplýsingar um hvernig hægt er að styrkja Rauða krossinn og Seyðfirðinga.
Hægt er að senda sms skilaboðin "HJALP" í númerið 1900 til að gefa 2900 krónur, eða fara á heimasíðu verkefnisins til að millifæra.
Meðal þeirra sem koma fram eru; Ásgeir, GDRN, Bríet, sillus X Hermigervill, Bjartar Sveiflur, Sykur, Hjaltalin, Halldór Eldjárn, Hatari, Vök, JFDR, Cyber, Benni Hemm Hemm & Prins Póló & Ívar Pétur, Abby Portner, Sunna Margrét, Sexy Lazer, Samantha Shay & Andrew Thomas Huang, Hrafn Bogdan, Sodill, Crystal Lubrikunt, Forest Law, Augnablik, Rex Pistols, Pamela Angela, MSEA, Una Björg Magnúsdóttir, Nana Anine, Boris Vitazek, Supersport! og fleiri.
Fylgist með á instagram, bæði tónlistarflutningum og baksviðs þar sem verður sýnt frá lífi Seyðfirðinga, eftir hamfarir.