Sækja um framkvæmdaleyfi fyrir Vopnafjarðarlínu í vikunni

Landsnets stefnir á að sækja um framkvæmdaleyfi fyrir að leggja hluta Vopnafjarðarlínu 1 í jörð í vikunni. Stefnt er á að strengurinn verði tilbúinn í haust. Keyrt var á varaafli þar í á fjórða sólarhring í síðustu viku vegna bilunar á línunni.

Undirbúningur fyrir framkvæmdirnar hefur staðið í nokkurn tíma, enda sýna atburðirnir í síðustu viku að ekki er vanþörf á.

Steinunn Þorsteinsdóttir, upplýsingafulltrúi Landsnets, segir aðstæður á núverandi línuleið erfiðar, bæði sé þar snjóþungt og jafnvel snjóflóðahætta sem ógnað geti öryggi línumanna auk þess sem ísingarhætta sé þar sem valdi álagi á línuna.

Gert var áhættumat á línunni og var niðurstaða þess að leggja línuna í jörð á 9,6 km kafla, frá þeim stað sem línan sveigir til austurs frá veginum upp Hellisheiði Héraðsmegin að Vindfellshálsi í Vopnafirði.

Línan er á skipulagi tveggja sveitarfélaga, Múlaþings og Vopnafjarðarhrepps. Skipulagsvinnunni er lokið hjá Múlaþingi en breytt skipulag Vopnafjarðarhrepps liggur inni hjá Skipulagsstofnun til staðfestingar. Samningum er lokið við landeigendur.

Landsnet stefnir á að senda frá sér umsóknir um framkvæmdaleyfi í dag eða síðar í vikunni og stefnt að útboði í mars. Framkvæmdir gætu þá hafist í vor og gangi allt að óskum verður nýi strengurinn spennusettur í haust. Vorið 2022 verður framkvæmdum að fullu lokið með frágangi á leiðnni.

Áætlaður kostnaður við verkið er um hálfur milljarður króna.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.