Rýmingu aflétt að hluta
Rýmingu hefur verið aflétt á fjórum húsum af níu sem rýmd voru vegna skriðuhættu á Seyðisfirði fyrir viku.Ákvörðunin var tekin eftir útreikninga á virkni leiðigarða og safnþróar við Búðará. Jarðvegsfleki, sem talinn er vera allt að 20.000 rúmmetrar að stærð hefur verið á hreyfingu þar í rúma viku.
Í tilkynningu almannavarna segir að allar líkur séu á að varnargarðar myndu taka á móti flekanum og leiða til sjávar, þótt hann færi allur af stað í einu.
Þar sem enn mælist hreyfing á hryggnum verður áfram rýming á húsunum næst varnargarðinum. Það eru hús 5 og 7 við Fossgötu og 10, 16b og 18c við Hafnargötu. Rýmingu er því aflétt í fjórum húsum.
Hættustig er áfram í gildi á Seyðisfirð, óviðkomandi umferð um skriðusvæðið bönnuð og um göngustíga meðfram Búðará eða annars staðar þar sem varnargarðar beina skriðustraumnum. Engar hreyfingar hafa mælst annars staðar í hlíðinni.
Upplýsingafundur fyrir íbúa, með fulltrúum Veðurstofu, Múlaþings og almannavarna hefst í Herðubreið klukkan 18:00. Búið er að hafa samband við íbúa í húsunum næst Búðaránni.
Fjöldahjálparmiðstöðin þar verður opin milli klukkan 14 og 16 á morgun. Íbúar í húsum sem áfram eru rýmd geta komið þangað og hugað að húsum sínum undir eftirliti í skamma stund. Ákvörðun um slíka heimild verður endurmetin eftir morgundaginn og niðurstaðan þá kynnt.
Minnt er á Hjálparsíma Rauða krossins 1717.