Ríflega 300 farþegar í fyrstu sumarferð Norrænu
Vel gekk að taka á móti Norrænu á Seyðisfirði í morgun í fyrstu ferð hennar á sumaráætlun. Ríflega 300 farþegar komu með henni til landsins.„Þetta gekk mjög vel, fór í raun fram úr okkar björtustu vonum,“ segir Árni Elísson, tollvörður á Seyðisfirði.
Norræna lagðist að bryggju um klukkan hálf níu í morgun og var farin frá Seyðisfirði tveimur tímum síðar, eins og hún gerir á sumaráætlun.
Með henni komu ríflega 100 bílar og rúmlega 300 farþegar. Ferðin telst ekki stór miðað við fyrstu sumarferðir fyrir Covid-faraldurinn en farþegum Norrænu hefur fjölgað jafnt og þétt í síðustu ferðum og er von á að svo verði áfram.
Einn farþegi greindist með Covid-19 veiruna við skimun í Hirthals við komuna um borð. Viðkomandi ásamt tíu ferðafélögum voru í einangrun alla siglinguna. Hópurinn er nú allur á sóttvarnahótelinu á Hallormsstað en verið er að kanna hvort smitið sé gamalt. Ekki er talin hætta á að smit hafi getað borist frá hópnum til annarra farþega.
Lögreglan yfirferð bólusetningar- og sóttvarnavottorð farþega. Það var gert á Hafnarbakkanum í sólskini í morgun. Verið er að leggja drög að betri aðstöðu fyrir athuganirnar og vonast til að hún verði tilbúin fyrir næstu ferð.
Mynd: SigAð