Orkumálinn 2024

Reikna með að skólarnir opni í dag

Reiknað er með að Eskifjarðarskóli, Grunnskóli Reyðarfjarðar og Nesskóli sem lokaðir voru á föstudag opni í dag. Takmarkanir verða þó í Nesskóla vegna sóttkvía og einangrunar þar. Sendar verða út tilkynningar á Mentor sem foreldrar og forráðamenn grunnskólabarna í þessum áðurgreindum skólum eru beðnir að fylgjast vel með og kynna sér um skólastarfið framundan. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðgerðastjórn almannavarna á Austurlandi. Þar segir einnig að endurtekið hefur verið lögð rík áhersla á mikilvægi sýnatöku almennt en sérstaklega hefur orðum aðgerðastjórnar verið beint til þeirra sem hafa einkenni eða telja sig útsetta fyrir smiti .

„Viðbrögð hafa verið virkilega góð og þátttaka í sýnatöku mikil. Í gær, sunnudag, voru tekin 239 sýni á Egilsstöðum og Reyðarfirði auk þess sem sýnataka var á Vopnafirði. Þáttaka þessi er afar jákvæð og ekki síður að úr einangrun síðastliðna daga útskrifuðust fleiri einstaklingar en þeir sem greindust með smit.  Þeim fækkar því sem eru í einangrun vegna smita, en þeir eru nú 105 á Austurlandi. Þessi þróun bendir til að takast muni að ná böndum á þeirri slæmu þróun í smitbylgjunni sem uppi var fyrir nokkrum dögum hér eystra,“ segir einnig.

„Jákvæða þróun sem að framan er lýst byggir á samstilltu átaki alls og allra í samfélaginu okkar á Austurlandi. Aðgerðastjórn þakkar íbúum góð viðbrögð og þátttöku í persónulegum smitvörnum og treystir á áframhaldandi góða samvinnu. Í hönd fer tími þorrablóta sem er tengdur samveru og hópamyndun í hugum okkar margra. Í því sambandi skal minnt á gildandi hópatakmörk við 10 manns og það að virða þau mörk er mjög mikilvæg sóttvarnaaðgerð.“

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.