
Reikna með að skólarnir opni í dag
Reiknað er með að Eskifjarðarskóli, Grunnskóli Reyðarfjarðar og Nesskóli sem lokaðir voru á föstudag opni í dag. Takmarkanir verða þó í Nesskóla vegna sóttkvía og einangrunar þar. Sendar verða út tilkynningar á Mentor sem foreldrar og forráðamenn grunnskólabarna í þessum áðurgreindum skólum eru beðnir að fylgjast vel með og kynna sér um skólastarfið framundan.Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðgerðastjórn almannavarna á Austurlandi. Þar segir einnig að endurtekið hefur verið lögð rík áhersla á mikilvægi sýnatöku almennt en sérstaklega hefur orðum aðgerðastjórnar verið beint til þeirra sem hafa einkenni eða telja sig útsetta fyrir smiti .
„Viðbrögð hafa verið virkilega góð og þátttaka í sýnatöku mikil. Í gær, sunnudag, voru tekin 239 sýni á Egilsstöðum og Reyðarfirði auk þess sem sýnataka var á Vopnafirði. Þáttaka þessi er afar jákvæð og ekki síður að úr einangrun síðastliðna daga útskrifuðust fleiri einstaklingar en þeir sem greindust með smit. Þeim fækkar því sem eru í einangrun vegna smita, en þeir eru nú 105 á Austurlandi. Þessi þróun bendir til að takast muni að ná böndum á þeirri slæmu þróun í smitbylgjunni sem uppi var fyrir nokkrum dögum hér eystra,“ segir einnig.
„Jákvæða þróun sem að framan er lýst byggir á samstilltu átaki alls og allra í samfélaginu okkar á Austurlandi. Aðgerðastjórn þakkar íbúum góð viðbrögð og þátttöku í persónulegum smitvörnum og treystir á áframhaldandi góða samvinnu. Í hönd fer tími þorrablóta sem er tengdur samveru og hópamyndun í hugum okkar margra. Í því sambandi skal minnt á gildandi hópatakmörk við 10 manns og það að virða þau mörk er mjög mikilvæg sóttvarnaaðgerð.“