Orkumálinn 2024

Páll Baldursson: Hvað fá menn með að færa Hringveginn?

pall_baldursson.jpg Páll Baldursson, sveitarstjóri Breiðdalshrepps, spyr hvað menn telji sig fá með að færa Hringveginn af Breiðdalsheiði yfir á firði annað en það að hafa örfáa brauðmola af nágrönnum sínum.

 

Það gerir hann í grein á vef Breiðdalshrepps. Páll segist efins um að menn fái betri þjónustu, hún sé ekki svo góð á þeim vegakafla sem færa eigin veginn á. Hann efast einnig um að vegnúmerið ráði því hvert ferðamenn fari.

„Er þá hugsunin að ná þeim örfáu brauðmolum sem dottið gætu inn á framangreindan vegakafla í Breiðdal til sín? Ef svo er þá er það merkilegt í því ljósi að forsvarsmenn þess sveitarfélags á Austurlandi, sem hvað mestan stuðning hafa fengið á liðnum árum, skuli tala hæðst um færslu á þessu umtalaða þjóðveganúmeri. Falleg hugsun gagnvart nágrönnum sínum!“

Páll segist tilbúinn að taka þátt í umræðum um veganúmer aða „aðra hringavegavitleysu“ þegar forsvarsmenn Fjarðabyggðar hafi náð því í gegn að síðasti kaflinn á þjóðvegi eitt hafi verið klæddur.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.