Plasthlíf kemur ekki í stað grímu
Hjálmar með plasthlífum án grímu veita ekki þá vörn gegn dreifingu Covid-19 sem þörf er á. Aðgerðastjórn almannavarnanefndar Austurlands hvetur íbúa til að vera meðvitaða um mikilvægi grímunotkunar.Þetta kemur fram í tilkynningu aðgerðastjórnarinnar í dag. Þar kemur fram að aðeins hafi borið á að starfsfólk í afgreiðslu í verslunum á svæðinu hafi notað slíka hjálma en engar grímur. Þeim hafi verið bent á að hjálmarnir dugi ekki og er athygli almennings vakin á hinu sama.
Ekki hefur greinst nýtt smit í fjórðungnum frá því á þriðjudag. Sá sem þá veiktist hefur síðan verið í einangrun og nýtur reglulegs eftirlits og ráðgjafar heilbrigðisstarfsfólks. Aðgerðastjórnin hvetur íbúa til að gæta að sinum persónubundnu sóttvörnum og vekur sérstaka athygli á mikilvægi grímunotkunar, sem er meðal annars skylda í öllum verslunum. Samkvæmt tölum frá Covid.is fækkar áfram í sóttkví og eru aðeins tveir einstaklingar eftir í þeim hóp, samanborið við fimm í gær og 38 á föstudag.
„Höldum áfram að ganga þennan COVID veg saman, gætum hvert að öðru, styðjum hvert annað og komumst þannig saman í mark.“