Óveruleg hreyfing eftir nóttina
Óveruleg hreyfing virðist hafa orðið á jarðvegsflekanum við Búðará á Seyðisfirði í nótt. Færslan er þó heldur hraðari eftir rigningarnar á fimmtudag en þar áður.Þetta kemur fram í yfirliti frá Veðurstofu Íslands. Samkvæmt línuriti hefur spá mælir, sem mest hefur færst, hreyfst um eina 9 sm. undanfarna viku. Annar mælir á flekanum hefur hreyfst um 7,5 sm.
Alls eru 40 speglar í hlíðinni. Hinir 38 hafa ekki hreyfst.
Fram kemur að radarmynd sýni óverulega hreyfingu þessa stundina. Speglamælingar sýni svipaða hreyfingu og síðustu tvo sólarhringa, sem sé nokkuð meiri hraði en áður.
Vatnshæð í borholum á svæðinu er annað hvort hætt að hækka eða tekin að lækka. Það er til marks um að vatnsþrýstingur á svæðinu sé að minnka
Spáð er rigning um miðnætti í kvöld. Íbúar úr níu húsum við Búðará, sem rýmd voru á mánudag, fá ekki að fara heim fyrr en eftir helgina.
Helgin verður notuð til að vinna úr gögnum sem safnast hafa um ástand jarðvegsflekans. Í tilkynningu frá í gærkvöldi segir að hann sé nokkuð sprunginn þannig ólíklegt sé að hann falli allur í einu. Þá verður athugað hvort þær varnir sem til staðar eru við ána verji byggðina, jafnvel þótt allt fari af stað í einu.
Fjöldahjálparmiðstöð í félagsheimilinu Herðubreið er opin frá 14-16 um helgina.