Ótrúleg heildarmynd af fyrstu íbúum Seyðisfjarðar

Uppgreftri í bæjarhóli landnámsbæjarins Fjarðar í Seyðisfirði er lokið þetta sumar. Ótrúlega heillegar húsarústir hafa komið þar í ljós og þar með heimildir um síðari hluta landnáms og upphaf miðalda á Íslandi.

„Við töldum bæjarhólinn vera nokkuð þekkta stærð en hann varð töluvert stærri og umfangsmeiri en við héldum, ekki 30 metra langur heldur 90 metrar,“ segir Ragnheiður Traustadóttir, doktor í fornleifafræði, sem stýrir uppgreftrinum. Rætt var við hana í þættinum Að austan á N4 í gærkvöldi.

Ráðist var í uppgröftinn í fyrra þar sem hluti svæðisins fer undir nýja snjóflóðavarnarmannvirki við norðanverða byggðina. Síðasta haust fundust kuml, grafir úr heiðnum sið.

Í ár hafa fundist mannvirki frá tímabilinu 950-1150, víkingaaldarskáli, útihús, túngarður og fleira. Yfir hluta uppgraftarsvæðisins lá skriða, sem féll um aldamótin 1100, sem á sinn þátt í varðveislu svæðisins.

„Við erum með metra háa torfveggi í skálanum og viðbyggingum. Við sjáum aldrei slíkt frá þessum tíma. Skriðan hefur varðveitt þessa veggi. Það að byggingarnar séu þetta heillegar gera okkur auðveldara að skilja þær. Við höfum líka fundið ótrúlega marga gripi; hversdagsgripi, skartgripi og gripi sem búnir voru til á staðnum.

Með þessu öllu og í samhengi við kumlin frá í fyrra, fáum við ótrúlega áhugaverða heildarmynd af fyrstu íbúum Seyðisfjarðar. Við getum myndað okkur skoðun á sögu þeirra sem fyrst settust hér að og sagt sögu þeirra.“

Fyrirhugað var að ljúka uppgreftrinum í sumar en ljóst er að halda þarf áfram þriðja árið. Vetrarmánuðirnir eru síðan nýttir til að tryggja varðveislu og rannsaka það sem fundist hefur í sumar.

„Allar minjar segja einhverja sögu. Á Austurlandi hefur verið lítið grafið, sérstaklega frá þessum tíma. Þessi uppgröftur mun gefa okkur fyllri mynd af sögu 10. og 11. aldar á Íslandi. Hér er líka upphaf Seyðisfjarðar og þar með saga Seyðfirðinga. Veturinn og næsta sumar verða því mjög spennandi.“

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.