Olís í Neskaupstað lokað vegna meints sóttvarnabrots
Þjónustustöð Olís í Neskaupstað var lokað um kvöldmatarleytið í kjölfar ábendinga til lögreglu um brot á sóttvarnarlögum.Lögreglunni á Austurlandi bárust seinni partinn í dag ábendingar um að einstaklingur, sem á að vera í einangrun vegna Covid-19 smits, hefði komið inn á stöðina. Í kjölfarið var ákveðið að loka stöðinni og sótthreinsa hana.
Kristján Ólafur Guðnason, yfirlögregluþjónn, segir að verið að kanna hvort ábendingarnar eigi við rök að styðjast en enn sé ekkert sem sanni að viðkomandi hafi komið inn á stöðina og þar með brotið sóttvarnalög.
Rétt hafi þó þótt að loka stöðinni í öryggisskyni meðan komist væri til botns í málinu. Þá verði veittar nánari upplýsingar.