Ókeypis garðsláttur í boði fyrir aldraða og öryrkja

Nýlega voru samþykktar af sveitarstjórn Múlaþings reglur um garðslátt fyrir eldri borgara og öryrkja. Samkvæmt þeim geta eldri borgarar og öryrkjar átt rétt á allt að þremur gjaldfrjálsum garðsláttum yfir sumarið.


Þetta kemur fram á vefsíðu Múlaþings. Þar segir að garðslátturinn sé í boði ef aldraðir og öryrkjar uppfylla eftirtalin skilyrði.

Umsækjandi eigi lögheimili í sveitarfélaginu Múlaþingi.
Umsækjandi hafi eingöngu tekjur vegna grunnlífeyris, s.s. örorkulífeyri eða ellilífeyri frá Tryggingastofnun.
Þjónustan er að jafnaði ekki veitt ef aðrir heimilismenn, 18 ára og eldri, geta sinnt henni.
Starfsmaður félagsþjónustu meti aðstæður umsækjanda þannig að hann geti ekki sinnt garðslætti sjálfur. Hægt er að óska eftir læknisvottorði því til staðfestingar.

Hægt er að sækja um garðslátt á heimasíðu Múlaþings, með rafrænum skilríkjum í gegnum umsóknir.
Mynd: mulathing.is

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.