Ofsaveðri spáð á Austfjörðum á laugardag
Veðurstofan varar við óveðri með miklu hvassvirði og snjókomu sem gengur yfir austanvert landið frá því á morgun föstudag fram á laugardag.Í kvöld gengur í suðvestan átt, 13-18 metra en á meðan henni stendur verður úrkomulítið á Austurlandi.
Þegar líður á daginn snýst vindur til norðvesturs. Þá kólnar verulega og síðan bætist snjókoma við auk þess sem bætir enn frekar í vindinn. Spáð ofsaveðri á Austfjörðum fyrri part laugardags, en gul viðvörun er í gildi fyrir Austfirði, Austurland að Glettingi og Suðuausturland frá klukkan fimm aðra nótt til klukkan 18 síðdegis á laugardag.
Á þessum tíma er gert ráð fyrir 20-30 m/s vindi um allt austan vert landið. Verst verður veðrið sunnan Reyðarfjarðar að Öræfum og er von á hviðum á því svæði sem náð geta 55-60 m/s á þekktum stöðum eins og Fagradal og Hamarsfirði.
Ekkert ferðaveður verður á meðan veðrið gengur yfir, enda skyggni lélegt. Þá er íbúum ráðlagt að tryggja lausamuni til að forðast foktjón.