Nýtt stýrikerfi fyrir sundlaugina á Djúpavogi
Nýtt stýrikerfi fyrir sundlaugina í íþróttamiðstöðinni á Djúpavogi er í burðarliðnum. Með þessari aðgerð verður hægt að stýra og fylgjast með öllu sem við kemur hita, klór, pH gildum, loftgæðum ofl.Þetta kemur fram á vefsíðu Múlaþings þar sem sem segir að síðustu misseri hefur verið unnið að greiningu á viðhaldsþörf og gerð áætlun um framkvæmdir í Múlaþingi. Meðfylgjandi eru upplýsingar um þær framkvæmdir sem hafnar eru við grunnskólann á Djúpavogi og íþróttamiðstöðina.
Hvað varðar grunnskólann segir að framkvæmdir við endurbætur á skólalóðinni eru hafnar og er 1. áfangi vel á veg kominn.
Sérkennsluaðstaða var útbúin síðastliðið haust og er það þörf viðbót sem hefur nýst vel.
Í lok síðasta árs voru gerðar úrbætur á hljóðvist í öllum eldri kennslustofum skólans með uppsetningu kerfislofta. Einnig var lýsing bætt og færð í nútímalegra horf.
Farið var í aðgerðir til að bregðast við kulda í nokkrum rýmum skólans og bætt við einangrun á lofti í elsta hluta hússins.
Ný sjálfvirk útihurð við aðalinngang skólans er komin í gagnið. Í framhaldinu verður forstofan endurskipulögð.
Byrjað er á að bæta aðgengi fyrir fatlaða og unnið er að lausnum til að hægt verði að útbúa öruggan göngustíg frá skólanum yfir að Helgafelli.
Á árinu 2022 er gert ráð fyrir að veðurkápa hússins verði endurnýjuð að miklu leyti en í því felst að skipt verður um glugga, þakskyggni og klæðningu á útveggjum.
Bætt sturtuaðstaða
Hvað íþróttamiðstöðina varðar, fyrir utan fyrrgreint stýrikerfi, segir að sturtuaðstaða hefur verið bætt og komin er lausn á skorti á heitu vatni.
Loftræstikerfi hefur verið endurnýjað að hluta og stórbætt með nýjum tæknibúnaði. Megin tilgangur þeirra framkvæmda er að bæta inniloft og vernda húsið fyrir skemmdum.
Unnið er að uppsetningu á nýju brunaviðvörunarkerfi. Það gamla hefur verið óvirkt frá 2015.
Skipt hefur verið um hluta ljósa í sundlaugarhúsi og á næsta ári er stefnt að því að skipt verði um glugga á norður og vestur hlið byggingarinnar.
Mynd: mulathing.is