Norðfjarðará hjó í veginn inn í Fannardal

Starfsmenn Vegagerðarinnar hafa í dag unnið að því að verja nýja veginn inn í Fannardal eftir að Norðfjarðará hjó skarð í vegöxl fyrr í dag.

Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni fór fylling úr vegkantinum skammt fyrir innan brúna yfir ána. Unnið hefur verið að því að verja veginn frekari skemmdum. Þá fór Grænanesvegur í sundur 

Áin hefur vaxið mikið síðustu daga en sólarhringsúrkoman í Neskaupstað í gær mældist yfir 100 mm samkvæmt tölum frá Veðurstofu Íslands. Heldur hefur dregið úr úrkominni í dag. Mesta úrkoma á Austfjörðum það sem af er degi eru rúmir 20 mm á Seyðisfirði.

Enn rignir víða á svæðinu og er viðvörun vegna mögulegra skriðufalla enn í gildi. Víða eru vatnavextir á svæðinu og runnið hefur úr vegöxlum á stöku stað en hvergi annars staðar er vitað um teljandi skemmdir.

Við Norðfjarðará upp úr hádegi í dag. Mynd frá vegfaranda.


Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.