Minnst af COVID smitum á Austurlandi
Annan daginn í röð finnast yfir 100 COVID smit á landinu en þau voru 115 í gærdag. Af einstökum landshlutum er minnst af smitunum á Austurlandi.Á vefsíðunni covid.is kemur fram að í dag eru aðeins 3 einstaklingar í einangrun á Austurlandi og 6 í sóttkví. Vestfirðir koma næst með 9 einstaklinga í sóttkví og 11 í einangrun.
Staðan er verst á höfuðborgarsvæðinu þar sem 648 einstaklingar eru í einangrun og 1.752 í sóttkví.
Aðgerðastjórn almannavarna á Austurlandi hefur hvatt fólk í fjórðungnum að huga að persónubundnum sóttvörnum. Einnig hefur aðgerðastjórin mælst til þess að grímur séu notaðar í verslunum.