Mikilvægt að fækka botnlöngum í raforkukerfinu
Líneik Anna Sævarsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi, segir rafmagnsleysi á Vopnafirði í síðustu viku sýna að mikilvægt sé að treysta innviði raforkukerfisins. Til stendur að setja Vopnafjarðarlínu í jörð í sumar.Vopnafjarðarlína skemmdist í óveðri aðfaranótt sunnudagsins í síðustu viku. Vegna snjóflóðahættu og veður var ekki hægt að gera við línuna fyrr en seinni part miðvikudags. Á meðan var varaafl keyrt á Vopnafirði en það gengur fyrir olíu.
„Það er svo engin Vopnafjarðarlína tvö því það vantar alveg hringtengingu raforkukerfisins á norðausturhorninu eins og víðar. Það er raforkuskortur á þessu svæði og það hefur verulega hamlandi áhrif á atvinnulífið á svæðinu og slæm umhverfisáhrif þegar brenna þarf olíu,“ sagði Líneik Anna á Alþingi í síðustu viku.
Hún segir stöðuna óviðunandi. „Þessi staða minnir enn og aftur á að tryggja þarf öllum byggðarlögum aðgang að nægjanlegri og tryggri raforku, svo sem eins og á Tröllaskaga og á norðausturhorninu og víðar þar sem eru botnlangar eða endar í raforkukerfinu hjá okkur.
Þetta er afleit og óviðunandi staða og það á miðri loðnuvertíð. Það vill svo til að næstum öll loðna sem komin er á land fer í manneldisvinnslu sem ekki er eins orkufrek og bræðsla,“sagði hún.
Undirbúningur fyrir að leggja Vopnafjarðarlínu í jörð á tæplega 10 km löngum kafla á Hellisheiði, þar sem línan skemmdist í síðustu viku. Áformað er að því verði lokið í sumar. Líneik segir verkið ekki þola bið enda séu veðurskilyrði oft vond á svæðinu auk þess sem það sé torfarið og því hættulegt. „Staðan núna sýnir einmitt mikilvægi þess að þeirri áætlun seinki ekki, við hana verði staðið.“